Langar þig að
uppgötva
leyndarmálið bak við bros Monu Lisu?
Da Vinci lykillinn hefur
trónað efst á metsölulistum í
Bandaríkjunum undanfarið hálft ár enda er
hér á ferðinni mögnuð spennusaga sem
gagnrýnendur og lesendur keppast við að lofa.
Robert Langdon, prófessor í táknfræði
við Harvard-háskóla, er vakinn með símtali
um miðja nótt á hótelherbergi í
París. Roskinn safnstjóri Louvre hefur verið myrtur
í einum sýningarsal safnsins og umhverfis hann gefur
að líta einkennileg tákn og óskiljanlega
skrift. Langdon tekur höndum saman við ungan franskan
dulmálssérfræðing, Sophie Neveu, sem blandast
inn í málið. Saman uppgötva þau
röð óvæntra vísbendinga sem leiða
lesandann meðal annars á slóð meistaraverka
Leonardos da Vinci, leynifélagsins Bræðralags
Síons og aldalangra átaka þess við
kaþólsku kirkjuna.