(6.12.2007)

Ólafur Stefánsson handknattleiksmađur, sem er nýkominn heim til Ciudad Real frá Madrid, gerir játningu: 

Í dag hafa ţó nokkrir fórnađ tíma sínum á altari óljóss tilgangs, fastir í draumum annarra og í slagtogi viđ Sísifos. Ţeir vita ţví miđur ekki möguleikunum fólgnum í hverri sekúndu lífs ţeirra. Einn ţeirra er ákvörđunin ađ vera ekkert, hugsa allt, og geta samt haft áhrif. Ađ geta staldrađ viđ ţegar hentar og horft í tvíkóđana eđa stjörnurnar. Hugleitt veruleikann í stađ ţess ađ fljóta stefnulaust í honum.

Mínar hetjur eru shamanar. Ţeir sem fariđ hafa Leiđangurinn.

meira >

(28.11.2007)

Halla Gunnarsdóttir blađamađur á Morgunblađinu gerir játningu dagsins:

"Ţú ert eins og Astrid Lindgren hafi skrifađ ţig," sagđi mađur viđ mig um daginn sem var gestkomandi á heimili mínu. Máli sínu til stuđnings kallađi hann páfagaukinn minn Hr. Níels.

Ég gat satt best ađ segja ekki ađ ţví gert ađ ég fór eiginlega hjá mér. Ég man ekki til ţess ađ hafa áđur fengiđ eins merkilegt hrós. Ţegar ég var barn las ég bćkur Astridar Lindgren upp til agna og helst oftar en einu sinn og oftar en tvisvar. Ég tárađist yfir ást Ronju og föđur hennar, lifđi mig inn í ćvintýri Míós sem var meiri hetja en hann sjálfur hefđi trúađ og hafđi samúđ međ Emil í Kattholti sem vildi alltaf vel en ruglađist óvart stundum.

meira >

(20.11.2007)

Játningu dagsins skrifar Bjarni Jónsson leikskáld (og glimrandi ţýđandi). Bjarni játar ađ hann hefur áhyggjur:

Ég játa, ađ ég hef áhyggjur af 16 ára unglingum á Íslandi. Sjálfur varđ ég sextán áriđ 1982. Ég náđi ađ kaupa mér rauđan Washburn gítar, dró fram gamlan frakka og nćldi í hann Peace og Talking Heads; barmmerkjum sem Grammiđ seldi. Ég öslađi á kínaskóm í gegnum veturinn, myrkur á svip eins og tólf tomma međ Joy Division, ég fór í tónlistarklúbbinn, pantađi Ţeysarana á tónleika í Fjölbraut, Purrkinn, Tappa Tíkarrass (Björk flýtti sér í bćinn, átti ađ fara í sögupróf daginn eftir) og Ţursana. Hún gleymist líka seint, skólaheimsóknin í Fjölbrautaskóla Suđurnesja; ţá hljóp ég organdi fullur um Keflavík, en heyktist á ađ fara upp á Base ađ skođa F16 ţoturnar eins og vinur minn gerđi

meira >

(30.10.2007)

Ófeigur Sigurđsson skrifar játningu dagsins.

Já, ég skal játa ţađ fúslega fyrir ykkur ađ ég er haldinn hryllilegu jólabókaţunglyndi. Skammdegiđ hokrir eins og barin skepna undir ţessari andstyggilegu útungunarvél og hefur lítil sem engin áhrif á mig, nema hvađ mađur finnur virkilega til međ vanmáttugu myrkrinu. Um leiđ og jólabćkurnar byrja ađ smeygja sér inn í veruleikann međ sinni óţolandi jólaáru bregst líkaminn ósjálfrátt viđ – ef hann á ekki ađ visna og molna sundur – međ ţví ađ leita í erlendar bćkur (eins og ţađ sé eitthvađ?). Og dýrđ sé Guđi fyrir góđa ţýđendur! Einn slíkur var herra Ţ. Ţ., eins og allir vita. Hann var valdur ađ ţeirri blessun ađ ţessa dagana situr William Heinesen gegnt mér í stofunni og segir mér af mönnum og mannleysum í Fćreyjum. Ég ligg agndofa og hlusta, hann talar beint til mín, eyrun mín trúa ţví varla ađ til sé slík fegurđ, ađ eitthvađ geti veriđ svona lifandi og stórkostlegt. William gerir hlé á máli sínu, hann fiktar ađeins í sveifinni á hćgindastólnum frá langafa mínum, og kemur sér betur fyrir. Ţá furđar hann sig á ţví ađ ég nenni ađ hlusta á allar ţessar frásagnir hans. Ég segi honum frá jólabókaţunglyndinu mínu, en honum finnst ekki mikiđ til ţess koma, og spyr mig hvort ég hafi heyrt um kvennagulliđ í grútarbrćđslunni! Ţegar ég svara ţví játandi, en hálf hikandi ţó, segir hann: Ć, já, litli minn, ég held barasta ég sé búinn ađ segja ţér allar sögurnar sem ég kann, enda hef ég setiđ hérna hjá ţér lengi. Ţegar ég fylgi honum út... nei! er ţá ekki barasta hann Knut Hamsun ađ reyna átta sig á dyrabjöllunni!

meira >

(26.09.2007)

Ţađ er hlaupiđ í mann haust, óneitanlega.

Einu sinni fyrir óralöngu var ég í öđru landi óralangt í burtu og ţá var haust eins og núna nema ennţá kaldara. Í hálfgerđri heimţrá, sem ég hef annars alltaf harđneitađ ađ kannast viđ en viđurkenni nú, ţrjátíu árum síđar nákvćmlega, las ég í íslenskri bók setningu sem mér fannst svo falleg og heimţrárleg ađ ég beygđi af og kannski var hún ekki akkúrat svona: Sumar á Íslandi er ekki veđur heldur ljós.  ....

Elísa Björg Ţorsteinsdóttir, hinn frábćri ţýđandi, gerir hér játningu. 

meira >

(20.09.2007)

Ný ljóđabók eftir Ingunn Snćdal er vćntanleg hjá Bjarti innan skamms. En. Fyrst gerir Ingunn játningu á Bjartsvefnum:

Ég vildi ađ mér ţćtti Gunnar Gunnarsson skemmtilegri en raunin er. Vikivaki fyllir mig leiđa og geispum.

Sama á viđ um sumar bćkur sem taldar eru til stórvirkja í bókmenntasögunni. Bćkur eftir D.H. Lawrence, Somerset Maugham, F. Scott Fitzgerald, Trollope, Isabel Allende. Og ótalmarga fleiri. Ég fyllist af pirringi ţegar mér finnst höfundarnir drekkja sögunni í orđum... missi ţráđinn, hćtti ađ nenna, byrja ađ skanna og skima eftir ţví sem mér finnst vera Sagan mitt í vađlinum. Puđast samt í gegnum marga dođrantana – til ađ vera samrćđuhćf? Eđa til ađ sanna eitthvađ? Sennilega einungis til ađ fá stađfestingu á ţví sem ég tel mig vita – ţetta eru leiđinlegar bćkur.

Ég er hrćdd um ađ kannski hafi óhóflegur lestur á beisik bókum eins og Theresu Charles, unglingabókum Margit Ravn og leynilögreglusögum um Nancy Drew og Frank og Jóa, á bókasafni lestrarfélagsins heima, eyđilagt lestrarhćfileika mína fyrir lífstíđ.

Mér leiđast málalengingar og útúrdúrar, ég vil bara fá sögu.

Kannski var bara ekki nóg lesiđ fyrir mig ţegar ég var lítil. meira >

(14.09.2007)

Oddný Eir Ćvarsdóttir gerir játningar frá hćlinu.

Myndin af Eiríki sem reiđ á vađiđ í billjard gćti vel veriđ héđan frá
hćlinu ţar sem gjarnan er tekiđ í kjuđa á kvöldin. Skáldiđ vćri vel
hér komiđ og gott líka ađ róa ađeins taugarnar. Uppi í sjúkrarúmi les
ég bók sem heitir ÁFERĐ og er eftir Ófeig Sigurđsson. Mjög hressandi
hrađur og građur texti og gott ađ fljóta um í taugaveiklun ofur
nćmleikans og komast í snertingu viđ konstant óţol og ofnćmi fyrir
allri áferđ veruleikans. Stórkostleg er löng lýsing á ógeđslegum hundi
sem í lok ćsandi lýsingar er drepinn međ vasahníf. Áđur en átökin
hefjast og spennan eykst segir hann: "Ég er ađ reyna ađ róa taugarnar.
Allir eru löngu sofnađir. Ef hundurinn prumpar, stend ég upp og sker
hann á háls!"

meira >

(12.09.2007)
Bjartur rćđur sér ekki af gleđi. Ţađ er bókmenntahátíđ. Fyrirlestur Coetzee á hátíđarsal Háskólans í dag klukkan fjögur. Allir eru svo spenntir. Til ađ létta biđina ćtlar Bjartur.is ađ búa til nýjan fastan liđ, í fyrradag var stofnađur FUGL DAGSINS öllum til mikillar uppörvunar, í dag verđur kynntur liđurinn: JÁTNINGAR. Hér játar fólk eitthvađ sem ţví liggur á hjarta. Hvađ sem er. Segir kost og löst á bókum og öđrum mikilvćgum hlutum, sumir gefa stjörnur ţegar ţeir skrifa játningar sínar, ţví ţeim finnst skilabođin verđa ađ vera svo skýr. Eiríkur Guđmundsson ríđur á vađiđ og játar ađ ţađ hangi mórauđir púkar í geđinu á honum og ţá sé hann opinn fyrir hinu og ţessu. meira >




Bjartur bókaforlag         Brćđraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is