
Sögusviđiđ er Suđur-Karólína í upphafi sjöunda áratugar síđustu aldar. Söguhetjan Lily er fjórtán ára og býr međ kaldlyndum föđur sínum og blökkukonunni Rosaleen, sem gekk henni í móđurstađ ţegar móđirin lést á sviplegan hátt tíu árum áđur. Lily á ađeins óljósar minningar um móđur sína, og vođaskotiđ sem varđ henni ađ bana. Hver hleypti af?
Ţegar Rosaleen ćtlar ađ nýta sér nýfenginn kosningarétt lenda ţćr Lily í útistöđum viđ ţrjá illvígustu kynţáttahatarana í bćnum og verđa ađ leggja á flótta. Ţćr finna athvarf hjá sérkennilegum systrum - sem heita May, June og August - og eru býflugnabćndur. Systurnar kynna söguhetjuna fyrir leyndardómi býflugnanna – og minningar Lily um móđur sína, og missinn, skýrast.Leyndardómur býflugnanna er fyrsta skáldsaga Sue Monk Kidd. Guđrún Eva Mínervudóttir íslenskađi. Ţetta er 40. bókin sem kemur út í Neon-bókaflokki forlagsins en hann er helgađur nýjum og nýútgefnum erlendum skáldverkum í fremstu röđ
“Algerlega frábćr lesning.” Time Out New York
“Tilkomumikil fyrsta bók... Lily er heilsteypt og heillandi söguhetja og saga hennar grípandi.“ USA Today
“Heillandi, fyndin, áhrifarík ... Saga um lćkningarmátt ástar og fyrirgefningar.” The London Times
Í hverju hunangsbúi er ein drottning sem getur nýjar flugur og örvar vinnudýrin til dáđa. Ef hún deyr og ekkert er ađhafst bíđur býflugnabúsins ekkert nema dauđinn. En ef ný drottning er kynnt til leiks í búinu, getur ţađ haldiđ áfram ađ blómstra og dafna.
Bókin er 267 bls. Prentun: WS Bookwell, Finnlandi. Kápa: Ásta S. Guđbjartsdóttir.
Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta)