Penelópukviða  
Margaret Atwood

Í Ódysseifskviðu Hómers er Penelópu, eiginkonu Ódysseifs, lýst sem hinum trygga og trúfasta maka, og í aldanna rás hefur hún gjarnan verið talin fyrirmynd annarra kvenna.

Penelópa má bíða í tuttugu ár í kjölfar þess að Ódysseifur yfirgefur Íþöku til að berjast í Trójustríðinu. Henni tekst þrátt fyrir hvassan mótbyr að halda völdum í konungsríkinu, ala upp baldinn son þeirra Ódysseifs og draga yfir eitt hundrað vonbiðla á svari. Þegar eiginmaðurinn snýr loksins heim aftur, eftir margvíslegar mannraunir, bardaga við óvætti og ástarleiki við gyðjur, brettir hann upp ermar, drepur alla biðlana og tólf þermur Penelópu að auki.

Í þessari snjöllu, nútímalegu útsetningu á sögunni rekur kanadíska skáldkonan Margaret Atwood rás viðburða frá sjónarhóli Penelópu og hengdu þernana tólf. Hvers áttu þær að gjalda og hvert var hlutverk eiginkonunnar í öllum þessum grátbroslega harmleik? Penelópukviða er áleitin og frumleg skáldsaga, full af prakkaraskap, kaldhæðni og djúpri alvöru. Þýðandi: Sigrún Á. Eiríksdóttir.

Úr ritdómum

"Endurvinnsla Atwood á goðsögninni um Penelópu er bæði fersk og skapandi. ... Það er í eðli goðsagna að vera sagðar aftur og aftur og engin rétt útgáfa til. Aðstæður breytast, merking goðsagna getur breyst en sannleikur þeirra um eðli mannsins er sígildur. Það er gott að heyra hina kvenlegu hlið á karlrembulegum goðsögum, raddir kvennanna óma það sem Hómer þagði um." (Steinunn Inga Óttarsdóttir, Morgunblaðið)

"Penelópukviða er einmitt ein af þessum ágætu bókum sem er auðvelt að lesa í fyrsta sinn en þar með er hún síður en svo fulllesin og þá er hægt að lesa hana aftur. Og aftur." (Ármann Jakobsson, kistan.is)



Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta)





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is