
Í ágústmánuði 1939 svipti ungur bandarískur mannfræðingur, Buell Quain að nafni, sig lífi í frumskógum Brasilíu, eftir að hafa unnið að vettvangsrannsóknum meðal Krahó-indíana. Sextíu og tveimur árum síðar rekst brasilískur rithöfundur á nafn Quains í blaðagrein. Hann endurtekur nafnið nokkrum sinnum upphátt til að fullvissa sig um að hann sé ekki að dreyma - og áttar sig á að hann hefur heyrt þetta nafn áður.
Níu nætur lýsir martraðarkenndri leit höfundarins að staðreyndunum um dauða Buells Quain. Inn í sögu hans fléttast frásögn hins roskna heimamanns, Monoels Perna, sem rifjar upp næturnar níu sem þeir Quain vörðu í félagsskap hvors annars. Áhrifarík og snilldarlega samin skáldsaga eftir einn fremsta rithöfund Brasilíu.
Höfundur: Bernardo Carvalho
Þýðandi: Sigríður Á. Eiríksdóttir.
Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta)