Sögusviðið er þorpið Jasyk í Síberíu, árið 1919. Persónurnar eru sundurleitur hópur fólks af ólíkum uppruna sem ratað hefur á þennan hjara veraldar, nauðugt eða viljugt. Samfélagið er í upplausn, hugsjónum byltingarinnar og grimmilegum veruleika íbúanna lýstur saman með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Úr þessum efniviði skapar breski rithöfundurinn James Meek magnaða, grípandi og óhugnanlega frásögn sem afhjúpar hve langt manneskjan er tilbúin að ganga ... í nafni kærleikans.
James Meek er fæddur í London árið 1963. Hann hefur um árabil starfað sem blaðamaður, þar á meðal sem fréttaritari í Moskvu á árunum 1991 til 2000. Í nafni kærleikans er þriðja skáldsaga hans og hefur vakið gríðarlega athygli og sterk viðbrögð. Sagan hefur verið seld til 25 landa og var nýverið tilnefnd til Bookerverðlaunanna.
Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta)
Úr ritdómum:
"Í nafni kærleikans [er] mögnuð skáldsaga, skriðþung og djúp, spennandi, áhrifamikil og ögrandi - hvers getur maður frekar óskað sér." (Steinunn Inga Óttarsdóttir, Morgunblaðið)
"Í nafni kærleikans [er] mjög spennandi bók, einkum vegna þess hve vel uppbyggð hún er. Persónur eru smátt og smátt kynntar til sögunnar og lesandinn áttar sig ekki stax á því hvernig þær tengjast, en svo fer líf þeirra að fléttast saman. Um miðbik sögunnar dregur svo verulega til tíðinda." (Ingi Björn Guðnason, www.bokmenntir.is)
"Stórkostleg frásagnarlist, sannkallaður sagnasjóður." (Allan Massie, The Scotsman)
"Bók hans er einstök í sinni röð; hún skýtur þér kannski skelk í bringu en láttu Í nafni kærleikans alls ekki framhjá þér fara." (John de Falbe, The Spectator)
"Alveg einstakt skáldverk. Stíllin er svo hreinn, tær og sindrandi. Og hvílík frásögn! Hvílík saga!" (Philip Pullman)