Nafnabókin  
Amélie Nothomb

Nafnabókin hefst á lýsingu á raunum ungrar móður sem vill að dóttir sín fái óvenjulegt nafn sem hæfi stórkostlegri framtíð hennar. Faðirinn hefur hins vegar aðrar hugmyndir og veldur ósamkomulag um nafnið bana beggja foreldranna. Það fer þó svo að stúlkubarnið fær nafnið Plectrude, eins og móðirin hafði ákveðið, og er henni komið í fóstur hjá móðursystur sinni. Stúlkan sýnir brátt einstaka danshæfileika en hún rekur sig þó fljótlega á að það er enginn dans á rósum að verða ballerína.

Amélie Nothomb er einn vinsælasti höfundur Frakklands um þessar mundir og eru bækur hennar þýddar á fjölmargar heimstungur. Áður hefur komið út eftir hana á íslensku skáldsagan Undrun og skjálfti. Þýðandi: Guðrún Vilmundardóttir.

Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta)


 





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is