Góðir Íslendingar
Huldar Breiðfjörð

Ungur Reykvíkingur sem sjaldan hefur komið út fyrir borgarmörkin ákveður um hávetur að beina lífi sínu á nýjar brautir; kveðja Kaffibarinn, kaupa Lapplanderjeppa og halda í tveggja mánaða hringferð um Ísland þar sem jeppinn er bústaður hans. En þessi ferð í vetrarmyrkri um viðsjárverðar heiðar í leit að Íslandi verður jafnframt leit Íslendingsins að sjálfum sér. Hógvær og ísmeygileg gamansemi gera þessa ferðasögu um Ísland og íslenskan hugmyndaheim að hreinum skemmtilestri.

 

Huldar Breiðfjörð á Bjarti





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is