Amsterdam
Ian McEwan

Á hrollköldum febrúardegi hittast tveir gamlir félagar, Clive Linley og Vernon Halliday við útför Mollyar Lane. Clive er mikilsmetið tónskáld en Vernon ritstjóri útbreidds dagblaðs. Dagana eftir útförina þurfa þeir félagar að glíma við vanda sem hvorugur hafði séð fyrir og verða að taka afdrifaríkar, siðferðilegar ákvarðanir. En hvers vegna Amsterdam? Í hvaða hremmingum lenda þeir Clive og Vernon?

Ian McEwan hlaut virtustu bókmenntaverðlaun Breta, Booker-verðlaunin 1998 fyrir þessa bók. Uggi Jónsson þýddi.

 

Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta) 





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is