Fimm mílur frá Ytri-Von  
Nicola Barker

Það er sumar árið 1981. Söguhetjan er unglingsstúlkan Medve (Medve er ekki fornenskt orð yfir á eða hóru heldur ungverska og þýðir björn). Hún er risavaxin og sextán ára. Hún býr ásamt smávaxinni fjölskyldu sinni á hálfhrundu art déco-hóteli á eyju rétt fyrir utan Devon. Svo rennur upp 5. júní og pilturinn La Roux kemur inn á sögusviðið.

 

Nicola Barker er í hópi þeirra ungu rithöfunda sem rita á enska tungu sem bókmenntatímaritið Granta telur efnilegasta nú um stundir. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir bækur sínar og er hrósað fyrir fjörlegan stíl, svartan húmor og örgrandi persónusköpun. Þýðing: Elísa Björg Þorsteinsdóttir



Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta)





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is