Hin feiga skepna
Philip Roth

Girnd og dauðleiki eru helstu viðfangsefni þessarar bókar. David Kepesh, andstæðingur hjónabands og talsmaður frjálsra ásta, er á sjötugsaldri þegar hann fellur fyrir 24 ára stúlku af kúbverskum ættum og allt fer á annan endann í lífi hans. Þetta er kröftugt uppgjör við kynlífsdýrkun Vesturlanda, við hömlur og hömluleysi, samkennd og einstaklingshyggju. Philip Roth er almennt viðurkenndur sem einn fremsti núlifandi rithöfundur Bandaríkjanna. Þýðandi: Rúnar Helgi Vignisson.

 

Kaupa bók (á vef Bóksölu stúdenta) 





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is